|
|
![]() ![]()
![]()
![]()
Andrea Ösp fæddist 13. apríl 2002. Hún var 17 merkur (4255 gr.) og 53 cm. Það voru nákvæmlega 12 tímar sem liðu frá því að mamma byrjaði að fá verki þangað til hún kom í heiminn. Kl 4:45 vaknaði mamma með rosa verki en ákvað að vekja pabba ekki strax þar sem ég hafði platað hana nokkrum sinnum áður en kl.8:30 fannst mömmu komið nóg og vakti pabba kl.10 voru þau komin upp á spítala, þar fékk mamma að fara í bað og pabbi reyndi að dekra við hana svo kl.16:46 kom Andrea Ösp í heiminn. Mamma og pabbi voru bæði voða hamingjusöm og segja að hún sé sætasta stelpan í öllum heila heila heiminum. ![]()
Hanna Bríet fæddist 20. desember. Hún lét bíða eftir sér í 8 daga:) Mamma vaknaði um 4 leitið um nóttina og vissi að nú væri komið að því og vakti pabba og sagði að hann væri ekki að fara í vinnuna. Klukkan 7 var Andrea svo vakin og græjuð í leikskólann við vorum tilbúin rúmlega 8 og mamma og pabbi fóru í kjölfarið upp á spítala, voru komin þangað um 8:40 en mamma var bara komin með 3 í útvíkkun hún hélt að þetta yrði löng dvöl á spítalanum en nei alls ekki Hanna Bríet var komin í heiminn kl. 12:23 þannig þetta gekk ótrúlega hratt fyrir sig. Og að sjálfsögðu vorum við öll að springa úr gleði og við segjum að hún sé sætasta stelpan í öllum heiminum, með mér auðvitað enda erum við alveg ótrúlega líkar!! Við ákváðum að læsa síðunni okkar, lykilorðið er ættarnafnið hans Sölla þið sem eruð ekki með það á tæru getið sent okkur póst
Veðrið hjá okkur núna |
|
|
| Þú ert gestur nr. 81401 |